flugfréttir

Um 90 Boeing 737 MAX þotur kyrrsettar vegna galla í rafkerfi

9. apríl 2021

|

Frétt skrifuð kl. 16:21

Tilmælin ná til 90 Boeing 737 MAX þotna í flota hjá sextán viðskiptavinum

Boeing hefur sent frá sér fyrirmæli með viðvörun þar sem varað er við mögulegum galla í rafkerfi á einhverjum Boeing 737 MAX þotum sem viðskiptavinir þurfa að huga að eða lagfæra áður áður en þeim er flogið meira.

Boeing hefur sent sextán viðskiptavinum sínum, sem hafa 737 MAX þoturnar í flota sínum, erindi er varðar vandamál í rafkerfi og hafa nokkur bandarísk flugfélög á borð við American Airlines, United Airlines og Southwest Airlines, tekið einhverjar af MAX þotunum sínum úr umferð tímabundið á meðan farið er yfir rafkerfi vélanna.

Talsmaður Southwest Airlines segir að 30 af þeim 58 Boeing 737 MAX þotum, sem félagið hefur fengið afhentar, hafa verið kyrrsettar vegna þessa en félagið hefur ekki orðið vart við nein vandamál.

Þá hefur American Airlines tekið fjórtán Boeing 737 MAX þotur úr umferð eftir að fyrirmælin frá Boeing voru birt í morgun á meðan United Airlines hefur kyrrsett sextán þotur og þá hefur Alaska Airlines kyrrsett fjórar Boeing 737 MAX þotur.

Boeing kom auga á vandamálið sem varðar jarðtengingu milli nokkurrra kerfa í rafbúnaði vélanna sem eiga í hlut og vinnur flugvélaframleiðandinn nú að lausn á vandamálinu í samstarfi við bandarísk flugmálayfirvöld (FAA).

David Seymour, rekstarstjóri American Airlines, segir að vandamálið sé rakið til breytinga á verkferlum sem gerðar voru hjá Boeing á sínum tíma er kemur að uppsetningu á rafkerfi vélanna.

Fram kemur að fyrirmælin nái til 90 Boeing 737 MAX þotna en viðgerð á í flestum tilvikum að taka allt frá nokkrum klukkustundum upp í nokkra daga.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga