flugfréttir

Banna flug sem tekur minna en tvo og hálfan tíma með lest

12. apríl 2021

|

Frétt skrifuð kl. 09:35

Airbus A320 þota frá Air France á Orly-flugvellinum í París í Frakklandi

Ríkisstjórn Frakklands hefur samþykkt í atkvæðagreiðslu tillögu um reglugerð sem bannar flugferðir í innanlandsflugi í Frakklandi sem farþegar geta ferðast með lestum ef lestarferðin tekur styttri tíma en tvær og hálfa klukkustund.

Þetta er gert í þeim tilgangi að draga úr mengun með tilliti til umhverfissjónarmiða en stefna franskra stjórnvalda er að draga úr losun kolefna í Frakklandi um 40 prósent fyrir árið 2030 og ná sambærilegri losun kolefna og var í Frakklandi árið 1990 innan níu ára.

Þessi ákvörðun franskra stjórnvalda kemur aðeins nokkrum dögum eftir að ríkisstjórnin samþykkti 600 milljarða króna fjárveitingu inn í rekstur Air France til þess að rétta af rekstur flugfélagsins franskra vegna áhrifa af heimsfaraldrinum.

Agnes Pannier-Runacher, iðnaðarráðherra Frakklands, vísar gagnrýni á bug vegna ásakana frá flugiðnaðinum í Frakklandi sem segir að það sé ekki rétti tíminn núna til þess að koma með reglugerð sem skerðir flugsamgöngur þegar flugfélög mega síst við því.

„Við vitum að flug á stóran þátt í losun kolefna út í andrúmsloftið og vegna loftslagsbreytinga í heiminum þá þurfum við að leggja okkar að mörkum til þess að draga úr útblæstri“, segir Agnes sem tekur fram að á sama tíma sé verið að styðja við bakið á flugfélögum líkt og Air France sem er að fá fjármagn inn í reksturinn.

Umhverfisverndarsamtök í Frakklandi telja að tillagan hefði mátt vera strangari og segja umhverfissinnar að þeir hefðu viljað sjá að reglugerðin færi fram á bann við innanlandsflugi þar sem lestarsamgöngur taka allt að 4 klukkustundir.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga