flugfréttir
TAROM setur helming flugflotans á sölu
- Selja allar Airbus A318 þoturnar fjórar
Airbus A318 þota frá TAROM
Rúmenska flugfélagið TAROM hefur ákveðið að setja á sölu allar þær Airbus A318 þotur sem félagið hefur en TAROM er eitt af þeim örfáu flugfélögum í heiminum sem hefur ennþá þessa minnstu farþegaþotu, sem Airbus hefur framleitt, í notkun.
TAROM hefur 29 þotur í flota sínum og ætlar félagið að selja fjórtán þotur og þar
af allar fjórar Airbus A318 þoturnar en með því að losa sig við helminginn af flotanum vonast
flugfélagið eftir því að geta aukið rekstarfé sitt og dregið úr taprekstri vegna heimsfaraldursins.
Flugvélarnar sem seldar verða úr flotanum eru fjórar Airbus A318 þotur, fjórar Boeing 737-300
þotur, fjórar 737-700 og tvær ATR 42-500 skrúfþotur.
Flugfloti TAROM eftir þetta mun því samanstanda af fimm ATR 42-500 vélum, fjórum
Boeing 737-800, fjórum ATR 72-600 og tveimur ATR 72-500 flugvélum.
Ódýrasta flugvélin sem seld verður er Boeing 737-300 en sú elsta var framleidd fyrir félagið árið 1993
og er vonast til þess að félagið fái 189 milljónir króna fyrir eina slíka þotu en félagið setur
832 milljónir á hverja Airbus A318 þotu.
Airbus A318 þoturnar voru framleiddar frá árinu 2001 til ársins 2013 en aðeins 80 eintök
voru smíðuð á þessu tímabili og eru 47 slíkar enn í notkun í heiminum í dag en flestar eru að finna í flota
Air France sem hefur átján þotur enn í notkun af þessari gerð.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.