flugfréttir

Farþegar höfða mál í kjölfar bilunar í hreyfli hjá United

- Talið að nokkrir hafi uppskorið áfallastreyturöskun

13. apríl 2021

|

Frétt skrifuð kl. 15:26

Ljósmynd sem sjónarvottur af jörðu niðri tók af flugvélinni eftir að bilunin kom upp í hreyflinum

Nokkrir farþegar hafa leitað réttar síns eftir að hafa orðið fyrir andlegu áfalli er þeir voru um borð í Boeing 777 þotu frá United Airlines þegar upp kom sprenging í öðrum hreyfli vélarinnar skömmu eftir flugtak frá flugvellinum í Denver í febrúar síðastliðinum.

Atvikið vakti töluverða athygli þar sem stórar einingar og brak úr hreyflinum féll til jarðar og endaði til að mynda hreyflahlíf af hreyflinum í garði í einbýlishúsi skammt frá Denver.

Í málsgögnum frá lögfræðistofunni Clifford Law Offices kemur fram að nokkir skjólstæðingar, sem voru farþegar um borð í flugvélinni, hafi verið greindir með áfallastreyturöskun eftir að hafa séð hreyfilinn í ljósum logum en flugvélin lenti aftur í Denver 24 mínútum eftir að bilunin kom upp.

„Margir farþegar sem voru um borð í þessu flugi héldu að þetta væri þeirra síðasta stund“, segir Robert A. Clifford, stofnandi Clifford Law Offices lögfræðistofunnar í Chicago en hann hefur meðal annars verið saksóknari í máli fyrir hönd 72 fjölskyldna sem misstu ástvini í flugslysi er Boeing 737 MAX þota fórst í Eþíópíu fyrir tveimur árum síðan.

Um 240 manns voru um borð í Boeing 777 þotunni frá United Airlines og kemur fram að margir þeirra hafi farið með bænir alveg þangað til að flugvélin var lent aftur í Denver. Nokkrir hafa sett sig í samband við lögfræðistofuna vegna andlegs áfalls sem þeir eru ennþá að vinna úr og vonast þeir til þess að fá svör varðandi atvikið.

Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) vinnur ennþá að rannsókn atviksins en orsökin hefur verið rakin til málmþreytu í heyflablaði sem brotnaði í inntaki hreyfilsins og olli sprengingu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga