flugfréttir

Wizz Air að missa trúna á sumrinu

- Menn ekki eins bjartsýnir og þeir voru í fyrra varðandi sumartraffíkina

16. apríl 2021

|

Frétt skrifuð kl. 10:39

Jozef Varadi, framkvæmdarstjóri Wizz Air

Jozef Varadi, framkvæmdarstjóri Wizz Air, segist hafa misst trúna á sumrinu 2021 og er ekki lengur eins bjartsýnn á að sumarið verði eins gott og hann var í fyrra þegar hann taldi að lágfargjaldafélagið ungverska væri komið á fullt skrið „næsta sumar“ og byrjað að fljúga til allra áfangastaðanna í leiðarkerfinu og gott betur.

Mikil seinkun hefur orðið á útbreiðslu bóluefnis við kórónaveirunni í Evrópu og eru flest lönd í álfunni að tilkynna nýjar ferðatakmarkanir og sóttvarnir og þar af leiðandi segir Varadi ekki sjá fram á að sumarið verði dans á rósum eins og talið var í fyrra.

Wizz Air sá fram á að eftirspurnin eftir flugi í sumar yrði komin í 80% af því sem var árið 2019 en bókanir á vefsíðu flugfélagsins sýna fram á allt annað og nær fjöldi bókanna ekki helminginn af því sem vonir voru bundnar við.

Varadi segir að ástandið sé langt frá því að vera eins og menn vonuðust til og ástandið sé sérstaklega slæmt í Bretlandi en þrátt fyrir það þá ætlar Wizz Air ekki að fresta afhendingum á þeim tólf Airbus A320neo þotum sem til stendur að afhenda til félagsins á þessu ári.

Í augnablikinu vonast Wizz Air til þess að eftirspurnin fari að taka við sér síðla sumars og í haust þar sem bókanir á flugi á fyrri helming sumarsins virðast fara mun hægara af stað en gert var ráð fyrir.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga