flugfréttir

Tilmæli vegna galla í þrýstingsskilrúmum í Boeing 787

19. apríl 2021

|

Frétt skrifuð kl. 22:02

Tilmælin ná til allra Dreamliner-þotna sem skráðar eru í Bandaríkjunum

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa sent frá sér fyrirmæli er varðar lofthæfi allra þeirra Dreamliner-þotna sem skráðar eru í Bandaríkjunum þar sem farið er fram á skoðun á þrýstingsjöfnunarskilrúmum um borð í þotunum.

Tilskipunin er send út vegna nokkurra atvika sem hafa komið upp þar skemmdir hafa fundist á skilrúmum í svæði undir gólfi farþegarýmisins en um er að ræða sérstök bil sem er ætlað að safna í sig raka og vatni.

Þessi skilrúm hafa á nokkrum Dreamliner-þotum reynst vera rifin og sundurtætt þar sem þau hafa ekki staðist þrýstingsjöfnun eins og gert er ráð fyrir og hefur því komið upp leki en ef upp kæmu neyðartilfelli, til að mynda sökum elds í farangursrýminu, er möguleiki á að sjálfvirkur slökkvibúnaður gæti ekki náð að ráða niðurlögum elds.

Fyrirmælin voru upphaflega birt af FAA í mars en nú hefur verið gefin út ný tilmæli sem ná til allra Dreamliner-þotna af gerðinni Boeing 787-8, 787-9 og Boeing 787-10 sem skráðar eru í Bandaríkjunum.

Farið er fram á að flugrekendur geri úttekt og skoðun á skilrúmunum bæði í fremra og aftara farangursrýmunum en skilrúmunum er meðal annars ætlað að létta á þrýstingsmun á milli rýma í skrokknum sem á að koma í veg fyrir skemmdir á burðarþoli ef loftþrýstingur fellur skyndilega niður mjög snögglega.

Boeing hefur ekki tjáð sig um málið en hefur gefið í skyn að fyrirmælin frá FAA séu ekki þess eðlis að grípa þurfi í taumana umsvifalaust.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga