flugfréttir
Wizz Air stefnir á að hefja flug til Pakistan
Wizz Air stefnir á að hefja flug á næstunni til Islamabad í Pakistan
Wizz Air stefnir á að hefja áætlunarflug til Pakistan en flugfélagið áformar að fljúga á milli Búdapest og höfuðborgarinnar, Islamabad.
Þetta er haft eftir Joseph Varadi, framkvæmdarstjóra Wizz Air, sem átti fund með pakistönskum flugmálayfirvöldum
í Islamabad á dögunum.
Islamabad yrði þó ekki austasti áfangastaður Wizz Air því félagið flýgur nú þegar til Almaty í Kazakhstan
sem er einn af 150 áfangastöðum félagsins en félagið flaug fyrir heimsfaraldurinn um 500 mismunandi
flugleiðir.
Ef af fluginu á milli Búdapest og Islamabad verður þá ætlar Wizz Air að nota Airbus A321XL þotur
til flugsins.
Wizz Air sér fram á fjölmörg tækifæri með áætlunarflugi til Pakistan þar sem fá evrópsk flugfélög fljúga þangað
og þá býðst farþegum frá Pakistan upp á að ferðast áfram til fjölmargra áfangastaða í Evrópu með viðkomu
í Búdapest.
Fá sem engin lágfargjaldafélög í Evrópu hafa hinsvegar flogið til Pakistan þar sem hinn almenni pakistanski
borgari gerir aðrar kröfur til farþegaflugs en evrópskir farþegar þar sem þeir fara fram á heita máltíð um borð auk
annarra fríðinda sem hefur verið ástæðan fyrir því að aðeins stór flugfélög hafa flogið til landsins frá Evrópu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.