flugfréttir
Lufthansa pantar Boeing 787 og fleiri Airbus A350 þotur
Tölvugerð mynd af Dreamliner-þotu í litum Lufthansa
Lufthansa mun taka Dreamliner-þotur í notkun á næstunni en í gær lagði félagið inn pöntun bæði til Boeing og Airbus í alls tíu nýjar breiðþotur þrátt fyrir gríðarlega erfiðleika í rekstri.
Lufthansa tilkynnti í gær að félagið hafi lagt inn pöntun í fimm Airbus A350 þotur og fimm Dreamliner-þotur
af gerðinni Boeing 787-9 og er um að ræða Dreamliner-þotur sem nú þegar er búið að smíða.
Lufthansa Group hafði áður lagt inn pöntun í 25 Dreamliner-þotur en ekki hefur enn verið ákveðið hvernig
þær þotur mun deilast niður á dótturfélögin SWISS International Air Lines, Austrian Airlines og Lufthansa
og eru Dreamliner-þoturnar fimm, sem pantaðar voru í gær, þær fyrstu sem fullvíst er að fari í flota félagsins.
Boeing 787-9 þoturnar verða afhentar í ársbyrjun ársins 2022 en þess má geta að pöntunin í gær til Boeing
og Airbus kemur sama dag og félagið tilkynnti að til stendur að fækka starfsmönnum um allt að 10.000 manns
á næsta ári vegna heimsfaraldursins.
„Þrátt fyrir mjög krefjandi tíma í fluginu þá munum við halda áfram að fjárfesta í nýstárlegri flugflota
sem verður hagkvæmari og umhverfisvænni“, segir Carsten Spoht, framkvæmarstjóri Lufthansa.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.