flugfréttir
Flybe tryggir sér pláss á Heathrow
Flybe varð gjaldþrota í mars árið 2020
Breska lágfargjaldafélagið Flybe hefur tryggt sér pláss á Heathrow-flugvellinum í London en nýir eigendur vinna nú að lokaundirbúningi þess að koma flugfélaginu aftur í loftið í sumar.
Flybe hefur fengið úthlutað plássum frá British Aiways fyrir flugleiðinni á milli Lundúna
og Aberdeen í Skotlandi annarsvegar með allt að þremur flugferðum á dag fram og til baka
og fjórum plássum á viku á milli Heathrow og Edinborgar.
Plássin taka í gildi frá og með 28. apríl næstkomandi og standa til boða fram til 30. október
í haust en gert er ráð fyrir að Flybe eigi eftir að taka yfir öll plássin frá British Airways á fluginu
milli London Heathrow og Edinborgar og Aberdeen á endanum og mun British Airways
því eingöngu fljúga til Edinborgar frá London City flugvellinum.
Nýja Flybe-flugfélagið hefur aðeins tryggt sér eina farþegaflugvél af gerðinni de Havilland DHC-8-Q400
sem er í augnablikinu í geymslu í Exeter sem kemur úr flota Austrian Airlines en flugvélin
var skráð á breska skráningu þann 20. janúar sl. og ferjuð frá Zagreb til Bretlands þann 17. febrúar en hefur
ekki flogið nein undirbúningsflug frá því 7. mars síðastliðinn.
Tekið er fram að Flybe mun verða smærra í sniðum til að byrja með en stefnt er á að auka umsvifin jafnt og þétt og fjölga áfangastöðum í leiðarkerfinu bæði innan Bretlands og Evrópu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.