flugfréttir

Óska eftir ítarlegri gögnum varðandi rafkerfið á 737 MAX

6. maí 2021

|

Frétt skrifuð kl. 14:30

Boeing hafði í síðustu viku skilað inn leiðbeiningum með greinargerð til bandarískra flugmálayfirvalda varðandi vandamálið í rafkerfi 737 MAX þotnanna

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa beðið Boeing um að koma fram með ný gögn með upplýsingar varðandi stöðuna á þeim vandamálum sem eru að hrjá Boeing 737 MAX þotuna.

Í apríl komu í ljós nokkur vandamál er varðar rafkerfi Boeing 737 MAX þotnanna og fara flugmálayfirvöld vestanhafs fram á að Boeing geti greint frá stöðunni sem varpar fram spurningum varðandi umfang vandamálsins sem getur orðið til þess að kyrrsetning á tilteknum fjölda Boeing 737 MAX véla gæti ílengst lengur en áætlað var.

Vandamálið í rafkerfinu snertir um fjórðung allra þeirra Boeing 737 MAX þotna sem framleiddar hafa verið og búast bandarísk flugfélög við því að Boeing komi með yfirlýsingu fyrir helgi ásamt leiðbeiningum um hvernig best sé að lagfæra vandamálið með rafkerfið svo þau geti hafist handa og byrjað að fljúga þotunum aftur.

Upphaflega kom í ljós galli í jarðtengingu en síðar uppgötvuðust tvö önnur vandamál í rafkefinu og þar á meðal vandamál sem snýr að rafkerfi sem tengist aðalstjórnskjám fyrir framan flugmennina í stjórnklefanum.

Boeing hafði í síðustu viku skilað inn leiðbeiningum með greinargerð til bandarískra flugmálayfirvalda varðandi vandamálið og hafði FAA farið yfir þau gögn en nú hefur stofnunin óskað eftir ítarlegri greiningu á því hvort að lagfæring á vandamálinu gæti haft áhrif á önnur undirkerfi sem tengjast rafkerfinu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga