flugfréttir
Stefna á 90 prósent af leiðarkerfinu í innanlandsfluginu
- Widerøe gerir ráð fyrir að fljúga til allra áfangastaðanna sumarið 2022
De Havilland Dash 8 Q200 flugvél frá Norwegian á flugvellinum í Båtsfjord
Norska flugfélagið Widerøe áætlar að það muni ná að fljúga í sumar allt að 90 prósent af framboðinu og þeim flugferðum sem félagið bauð upp á árið 2019.
Widerøe stefnir á að einblína á innanlandsflugið í Noregi út árið 2021 að minnsta kosti og sér fram á næga eftirspurn í flugi
innanlands þar sem gert er ráð fyrir að Norðmenn muni verða duglegir í sumar að ferðast innanlands.
„Staðan er þannig að landamæri Noregs eru nokkurn veginn lokuð meira og minna og við gerum ráð fyrir að það verði þannig
í nokkra mánuði til viðbótar“, segir Stein Nilsen, framkvæmdarstjóri Widerøe, sem gerir ráð fyrir að mynstrið í ferðaáætlunum Norðmanna
verði svipað í sumar líkt og í fyrrasumar.
Nilsen bendir á að júlímánuður í fyrra hafi verið einn sá annasamasti í innanlandsfluginu í sögu flugfélagsins þar sem allir ferðuðust
innanlands og enginn hafi verið að fljúga til Grikklands eða suðurhluta Spánar og sér hann fram á að það muni endurtaka sig í sumar.
Fyrir heimsfaraldurinn þá voru áfangastaðir í innanlandsflugi Widerøe um 85% af leiðarkerfi félagsins en um 40 prósent af þeim
fá stuðning frá norska ríkinu sem greiðir niður flugfargjöld að hluta til. Félagið flýgur til margra afskekktra áfangastaða sem hafa
engar lestasamgöngur og ökutími með bíl tekur langan tíma.
Widerøe gerir ráð fyrir að bæta við 10 til 12 flugleiðum í millilandafluginu í sumar en félagið hefur til að mynda flogið í heimsfaraldrinum
á milli Bergen og Aberdeen og svo mun London Heathrow bætast við síðar í sumar.
Nilsen segir að sífellt sé verið að endurskoða leiðarkerfið og á hann von á að félagið muni fljúga til allra áfangastaðanna fyrir sumarið 2022.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.