flugfréttir

Tegel formlega afskráður sem flugvöllur

9. maí 2021

|

Frétt skrifuð kl. 16:24

Tegel-flugvellinum í Berlín þann 21. maí árið 2017

Tegel-flugvöllurinn í Berlín hefur formlega verip sviptur titlinum sem flugvöllur og er ekki lengur skilgreindur sem slíkur en um hálft er liðið frá því að flugvöllurinn hætti að þjóna flugvélum í áætlunarflugi.

Það var þann 8. nóvember sl. sem að síðasta áætlunarflugið fór um Tegel-flugvöll en frá því hafa flugmenn geta haft þann möguleika á því að lenda á Tegel ef nauðsyn krefur en sl. miðvikudag var sá kostur ekki lengur í boði og eru flugtök og lendingar ekki lengur heimilaðar á flugvellinum.

Til stendur að gamla flugstöðvarbyggingin verði miðstöð fyrir hagnýt vísindi á vegum Beuth University háskólans auk þess sem til stendur að reisa um 5.000 timburhús í nýju svæði sem skipulagt er á flugvallarsvæðinu.

Rekstarleyfi flugvallarins er því í dag útrunnið og er flugvallarsvæðið því aðeins „yfirgefið“ svæði með byggingum, flugbrautum og akbrautum líkt og Temeplhof-flugvöllurinn í Berlin sem er í aðeins 10 kílómetra fjarlægð suðaustur af Tegel-flugvellinum.

„Frá og með 5. maí er Tegel formlega ekki lengur flugvöllur og einnig er kemur að lögum og reglugerðum í fluginu“, segir í tilkynningu frá flugvallarrekstraraðilanum Flughafen Berlin Brandenburg GmbH (FBB).

Tegel-flugvallarsvæðið verður þó ekki opið fyrir almenningi strax líkt og Tempelhof-flugvöllurinn sem í dag er orðin að almenningsgarði.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga