flugfréttir
ATP Flight School opnar nýjan flugskóla í Texas
- Sjá fram á skort á flugmönnum eftir heimsfaraldurinn
Nýi flugskólinn á vegum ATP Flight School á flugvellinum í Arlington í Texas í Bandaríkjunum
Flugskólinn ATP Flight School, einn stærsti flugskóli Bandaríkjanna, hefur opnað nýtt útibú á Arlington Municipal flugvellinum í Texas, mitt á milli Dallas og Fort Worth.
Húsnæði flugskólans telur yfir 1.200 fermetra og er skólanum ætlað að anna þeirri eftirspurn sem verður eftir flugmönnum eftir að heimsfaraldrinum lýkur og segir í yfirlýsingu að með auknu framboði af flugnámi verði hægt að draga úr áhrifum af þeim flugmannaskorti sem blasir við eftir faraldurinn.
„Hver einast hluti af þessum 1.200 fermetrum var útfærður vandlega til þess að bjóða upp á atvinnuflugnám með eins skilvirkum og skipulögðum hætti og mögulegt er. Kennslustofurnar voru mjög vel útfærðar auk fundarherbergja auk þess sem vandlega var farið í útfærslu á aðstöðu fyrir flugherma“, segir í tilkynningu frá ATP.
ATP Flight School býður nemendum upp á Airlines Career Pilot Program námsleið
þar sem nýir flugmenn hefja flugnám með enga reynslu af flugi og ljúka náminu
sem atvinnuflugmenn þar sem síðasti hluti námsins fer fram í Boeing og Airbus flughermum.
Nýi flugskólinn í Arlington bætist í hóp 60 annarra útibúa á vegum ATP Flight School í Bandaríkjunum en gert er ráð fyrir að um 20.000 nemendur eigi eftir að útskrifast úr skólunum á næstu 10 árum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.