flugfréttir

Flugstjórinn pantaði pizzur fyrir alla um borð

10. maí 2021

|

Frétt skrifuð kl. 22:15

Flugvélin þurfti að lenda í Charleston á leið sinni frá Key West til Charlotte

Flugstjóri einn hjá bandaríska flugfélaginu American Eagle ákvað í seinustu viku að milda biðina fyrir farþegum með því að panta pizzu fyrir alla um borð eftir að óveður hafði sett strik í reikninginn.

Um var að ræða áætlunarflug frá Key West á Flórída til Charlotte í Norður-Karólínu með þotu af gerðinni Embraer ERJ-145 en flugvélin þurfti að lenda á herflugvellinum í Charleston í Suður-Karólínu vegna mikils þrumuveðurs á áfangastað.

Ákveðið var að bíða eftir að þrumuveðrið myndi ganga niður og höfðu farþegarnir um borð beðið í meira en klukkustund þegar flugstjórinn ákvað að panta pizzu fyrir allan mannskapinn.

Einhverjir farþegar tóku myndir og settu á samfélagsmiðla er pizzurnar komu á staðinn og tóku báðir flugmennirnir við pizzunum en bæði flugmaðurinn og flugstjórinn í þessu flugi hétu John og hefði því verið viðeigandi ef pizzurnar hefðu verið pantaðar frá Papa Johns en svo var ekki raunin.

Pizzurnar komnar um borð í Embraer-þotuna á herflugvellinum í Charleston sl. þriðjudag

Þotan fór svo síðar í loftið og lenti með töluverðri seinkun í Charlotte þar sem mikil seinkun hafði þegar orðið á brottför frá Key West.

„Við erum mjög stolt af American Airlines og einnig af samstarfsfólki okkar hjá Republic Airways sem hugsa mjög vel um viðskiptavini okkar á hverjum degi. Hvort sem það sé skin eða skúr þá nær starfsfólk okkar alltaf að sanna að þau eru meðal þeirra bestu í bransanum“, segir talsmaður American Airlines.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga