flugfréttir
Polderbaan tekin í notkun eftir viðamiklar framkvæmdir
Boeing 737 þota frá Transavia á Polderbaan-flugbrautinni á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam í Hollandi
Polderbaan-flugbrautin á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam hefur aftur verið tekin í notkun eftir viðamiklar framkvæmdir sem staðið hafa yfir sl. þrjá og hálfan mánuð.
Polderbaan er þekkt fyrir að vera staðsett langt í burtu frá Schiphol-flugvellinum sjálfum en akbrautarvegalengdin frá flugbrautinni
að flughlaðinu við næstu flugstöð eru yfir 3 kílómetrar og getur tekið yfir 10 til 15 mínútur fyrir flugvélar að aka að flugstöðinni
eftir að lent er á Polderbaan.
Flugbrautin, sem hefur stefnurnar 18R/36L, var seinast notuð í lok janúar á þessu ári en var tekin aftur í notkun þann 15. maí síðastliðinn
og er í augnablikinu eingöngu notuð við venjuleg veðurskilyrði í góðu skyggni.
Þann 10. og 14. maí fóru fram prófanir á aðflugi að flugbrautinni þar sem virkni og nákvæmni á blindaðflugsbúnaði voru prófuð
en flugbrautin hefur bæði ILS blindaðflugskerfi og PAPI-ljósabúnað.
Malbikun í gangi á Polderbaan-flugbrautinni
Nýja ILS blindaðflugskerfið þarf að nota við venjuleg skilyrði í 30 daga samkvæmt reglugerð áður en hægt verður að nota kerfið
fyrir lendingar í takmörkuðu skyggni til þess að fá reynslu á nákvæmni búnaðarins eftir framkvæmdirnar.
Þær framkvæmdir sem staðið hafa yfir eru meðal annars endurnýjun á yfirlagi brautarinnar sem telur 600.000 fermetra og fóru í það
150.000 tonn af malbiki en 60% af því yfirlagi sem var fjarlægt af brautinni var endurnýtt og notað í blöndu af malbiki sem kallast
Flightflex.
Þá voru lagðar 70 kílómetrar af leiðslum og rafmagnslínum og um 2.100 flugbrautarljós endurnýjuð á brautinni með LED-ljósum en
allar framkvæmdirnar voru það viðamiklar að ekki verður þörf á neinu umfangsmiklu viðhaldi á brautinni næstu 7 árin að undanskildu
hefðbundnu viðhaldi sem fer fram árlega.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.