flugfréttir
Stefna á að auka flugdrægi A220 þotunnar enn frekar
Airbus A220 þotan sem upphaflega var smíðuð af Bombardier
Airbus leggur nú drög að því að auka flugdrægi Airbus A220-100 þotunnar með það markmið að þotan geti flogið allt að 6.390 kílómetra (3.450 nm) eða 93 kílómetrum lengra en hún gerir í dag.
Þetta er aðallega gert til þess að uppfylla óskir bandaríska flugfélagsins Breeze Airways sem stefnir á að panta Airbus A220-100
þotuna með því skilyrði að hún geti flogið eilítið lengra svo hún passi inn í þær framtíðaráætlanir sem félagið hefur.
Breeze Airways stefnir á fyrsta áætlunarflugið þann 27. maí næstkomandi en félagið, sem var stofnað í júlí árið 2018, mun hefja
flugrekstur með sex Embraer-þotum og þá á félagið von á 80 þotum af gerðinni Airbus A220-300.
David Neeleman, stofnandi Breeze Airways, hefur áhuga á að panta A220-100 þotuna og nota hana til þeirra áfangastaða
þar sem flugtíminn er yfir tvær klukkustundir og þrýstir félagið því nú á Airbus til þess að auka flugdrægið vélanna.
Airbus hafði árið 2019 aukið flugdrægi A220 vélanna um 450 nm mílur til þess að koma til móts við viðskiptavini sem óskuðu
eftir meira flugdrægi og var hámarksflugtaksþungi þotnanna einnig
hækkaður upp í 5.000 pund (lbs).
Breeze Airways mun fljúga fyrsta flugið næstkomandi fimmtudag og verður fyrsta flugið á milli Tampa í Flóróda og
Charleston í Suður-Karólínu en flest áætlunarflugin í sumar verða til að byrja með undir 1.609 kílómetrar á lengd og þau
stystu aðeins 530 kílómetrar en félagið stefnir á að fljúga lengri vegalengdir milli áfangastaða í haust.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.