flugfréttir
Dómstóll skipar Air India til þess að endurráða 61 flugmann
Dreamliner-þota frá Air India
Hæstiréttur á Indlandi hefur skipa flugfélaginu Air India tl þess að draga til baka uppsagnir á 61 flugmann og ráða þá aftur til starfa en flugmönnunum var sagt upp vegna heimsfaraldursins.
Air India sendi flugmönnunum uppsagnarbréf fyrir 10 mánuðum síðan en dómstóll í Delhí hefur komist
að þeirri niðurstöðu að uppsagnirnar voru ólögmætar og þá hefur félaginu einnig verið gert
að greiða þeim þau laun sem þeir eiga sinni fyrir tímabilið frá apríl fram til ágúst í fyrra.
Fram kemur að flugmennirnir sextíu og einn höfðu upphaflega sagt upp störfum í júlí árið 2019
en drógu síðan uppsagnirnar sínar til baka innan sex mánaða uppsagnarfrestsins en Air India
sendi þeim í ágúst í fyrra bréf þar sem fram kom að ekki væri óskað eftir því að þeir kæmu aftur til starfa.
Air India réttlætti ákvörðun sína á þeim forsendum að ekki væri þörf fyrir flugmennina á þeim tíma
sem þeir óskuðu eftir því að ganga aftur til liðs við flugfélagið og væri það meðal annars vegna
þeirra breytinga sem höfðu átt sér stað í flugiðnaðinum vegna heimsfaraldursins.
Hluti af flugmönnunum höfðu þegar verið við störf hjá flugfélaginu og tóku vaktir án þess að vita
að deginum áður hefði þeim verið sagt upp störfum.
Fjörtíu flugmenn höfðuðu hópmálsókn gegn Air India og fóru fram á að dómstóll myndi þvinga
stjórn flugfélagsins til þess að ráða þá aftur til starfa.
Þrátt fyrir að niðurstaða dómsins sé að Air India beri að ráða flugmennina aftur þá geta flugmennirnir ekki átt von á því að fá starf sitt aftur strax þar sem önnur bylgja af kórónaveirufaraldrinum gengur nú yfir Indland og aðeins fáir flugmenn fá einhverjar vaktir til þess að fljúga.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.