flugfréttir
KLM flýgur til næstum allra borga á ný í Ameríku
Flugvélar KLM Royal Dutch Airlines á Schiphol-flugvellinum í Amsterdam
Hollenska flugfélagið KLM Royal Dutch Airlines hefur tilkynnt að félagið sé í dag að fljúga til næstum því allra þeirra áfangastaða í Norður-Ameríku sem félagið flaug til áður en heimsfaraldurinn skall á.
Í sumar mun félagið til 16 áfangastaða í Norður-Ameríku eða aðeins einum áfangastaði færri
en félagið flaug til árið 2019 en þá flaug félagið til 17 borga í álfunni en eini áfangastaðurinn
sem félagið mun ekki fljúga til í sumar er Salt Lake City.
Félagið mun næsta vetur bæta við tveimur nýjum borgum í leiðarkerfið í Norður-Ameríku og verður
félagið því komið yfir fjölda áfangastaða samanborið við árið 2019 en þeir áfangastaðir
eru Cancun í Mexíkó og Orlando í Flórída.
Þrátt fyrir að félagið muni fljúga í sumar til næstum því allra áfangastaðanna þá verður framboðið
mun minna og verður flogið mun sjaldnar til þeirra heldur en árið 2019.
„KLM er að undirbúa sig undir að auka frambðið um leið og eftirspurnin eykst en eins og staðan
er í dag þá er leiðarkerfið til Bandaríkjanna mjög sveiganlegt“, segir Pierer Elbers, framkvæmdarstjóri
KLM.
Flugfélagið hollenska hefur einnig tilkynnt um endurkomu sína til annarra áfangastaða í löndum
á borð við Tæland, Kenýa, Barbados og Trinidad og Tobago og er vonast til þess að hægt verð að fljúga
þangað í nóvember til þess að bjóða upp á sólarlandaferðir þegar veturinn tekur yfir Evrópu.
KLM er hægt og rólega að taka við sér eftir heimsfaraldurinn líkt og önnur flugfélög en tíðni flugferða
verður hinsvegar mun minni til að byrja með og verður flogið til margra áfangastaða með viðkomu á
öðrum stöðum eða boðið upp á áframhaldandi flug með öðrum flugfélögum sem KLM á í samstarfi við.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.