flugfréttir

Íhuga að panta allt að 150 þotur frá Boeing eða Airbus

10. júní 2021

|

Frétt skrifuð kl. 17:08

Flugvélar í flota United Airlines á O´Hare-flugvellinum í Chicago

Bandaríska flugfélagið United Airlines segist eiga í viðræðum bæði við Boeing og Airbus um stóra pöntun í yfir 100 þotur þar sem félagið stefnir á að stækka flugflotann sinn enn frekar á næstu árum.

United Airlines segir að verið sé að undirbúa pöntun í allt að 150 þotur og koma bæði Boeing 737 MAX 10 þoturnar til greina og A321neo frá Airbus.

Félagið stefnir á að færa út kvíarnar á næstunni þar sem heimsfaraldurinn er senn á enda og segir félagið að margar meðalstórar þotur í flotanum séu komnar til ára sinna sem þarf að skipta út fyrir nýjum flugvélum.

United Airlines hefur þegar fengið þrjátíu Boeing 737 MAX 9 þotur afhentar og á félagið von á 189 MAX þotum á næstunni en af þeim eru 40 af gerðinni 737 MAX 8, fjörtíu og níu af gerðinni Boeing 737 MAX 9 og þá á félagið von á 100 þotum af gerðinni Boeing 737 MAX 19.

Með fyrirhugaðri pöntun í enn fleiri þotur gæti heildarfjöldi pantanna því farið upp í 338 þotur ef United ákveður að panta fleiri MAX þotur í stað Airbus A321neo.

Heildarfjöldi flugflota United Airlines er 827 flugvélar og er meðalaldur þeirra 16.3 ár en af þeim eru 191 Airbus-þotur og 636 þotur frá Boeing.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga