flugfréttir
Wizz Air hefur innanlandsflug á Bretlandseyjum
Airbus-þotur í flota Wizz Air
Ungverska lágfargjaldafélagið Wizz Air mun í júlí ryðja sér leið inn á innanlandsmarkaðinn í Bretlandi með flugi á milli Bretlands og eyjunnar Jersey en þótt að Jersey sé ekki hluti af breska konungsdæminu þá hefur Bretland umsjón með utanríkismálum og varnarmálum eyjunnar.
Wizz Air mun fljúga á milli Jersey og Doncaster Sheffield flugvallarins og einnig á milli Jersey og Cardiff og er þetta í fyrsta
sinn sem að Wizz Air hefur flug á milli áfangastaða sem eru innan Bretlandseyja.
Þessi þróun markar þá stefnu sem Wizz Air hefur tekið frá því heimsfaraldurinn hófst en lágfargjaldafélagið hefur verið að
einblína að fylla í það skarð sem hefur myndast þegar önnur flugfélög felldu niður flug vegna dræmrar eftirspurnar.
Wizz Air opnaði starfsstöð á flugvellinum í Cardiff í desemeber í fyrra sem var fjórtánda starfsstöðin sem að félagið tók
í notkun frá því að heimsfaraldurinn byrjaði.
Þrátt fyrir 85 milljarða króna taprekstur árið 2020 og útlit fyrir áframhaldandi tap út þetta ár þá stefnir Wizz Air á að opna enn fleiri bækistöðvar og einnig auka umsvif sín utan Evrópu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.