flugfréttir

Hefja afhendingar á MC-21 þotunni á næsta ári

15. júní 2021

|

Frétt skrifuð kl. 14:42

Irkut MC-21 þotan verður afhent á næsta ári

Rússneski flugvélaframleiðandinn Irkut stefnir á að afhenda fyrsta eintakið af MC-21 þotunni á næsta ári.

Með þessu vonast Irkut til þess að rjúfa einokun Boeing og Airbus á markaðnum er snýr að meðalstórum farþegaþotum með einum gangi og veita Boeing 737 MAX og Airbus A320neo samkeppni en þrátt fyrir það hefur ekkert vestrænt flugfélag lagt inn pöntun í Irkut MC-21 þotuna.

Upphaflega var Irkut MC-21 þróuð af Yakovlev árið 2006 sem er í dag dótturfyrirtæki rússnesku flugvélasamsteypunnar United Aircraft Corporation. Þotan flaug sitt fyrsta flug árið 2017 en fjöldaframleiðsla hófst í seinasta mánuði á fyrstu sölueintökunum.

United Aircraft Corporation tilkynnti í síðustu viku að fyrsta þotan yrði afhent árið 2022 og er það rússneska flugfélagið Rossiya Airlines sem fær fyrstu þotuna afhenta og á flugfélagið von á sex MC-21 þotum árið 2022.

Tólf viðskiptavinir eiga von á samtals 175 eintökum af Irkut MC-21 þotunni en af þeim eru ellefu viðskiptavinir frá Rússlandi fyrir utan Azerbaijan Airlines. Tveir viðskiptavinir til viðbótar hafa gert samkomulag um kaup á vélunum, eitt rússneskt flugfélag og hitt flugfélag frá Indónesíu.

Þá hafa fjórir viðskiptavinir hætt við staðfesta pöntun í Irkut MC-21 þotuna, einn viðskiptavinur frá Malasíu, egypska fyrirtækið Cairo Aviation og rússnesku flugfélögin VIM Airlines og Saratov Airlines.

Þá hafa tvö flugfélög hætt við samkomulag sem þau höfðu gert vegna kaupa á MC-21 þotunni sem er Peruvian Airlines í Perú og Bek Air frá Kazakhstan.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga