flugfréttir

Icelandair snýr aftur til Minneapolis

- Sjöunda borgin í Bandaríkjunum bætist aftur við í leiðarkerfið

18. júní 2021

|

Frétt skrifuð kl. 07:14

Boeing 757-200 þota frá Icelandair á Minneapolis/St. Paul flugvellinum í júní árið 2018

Icelandair mun snúa aftur til Minneapolis í Bandaríkjunum eftir meira en árshlé vegna COVID-19 heimsfaraldursins.

Fyrsta áætlunarflugið til Minneapolis/St. Paul International flugvallarins eftir hlé verður flogið þann 20. júní næstkomandi og mun Icelandair þá fljúga til sjö áfangastaða í Bandaríkjunu en nú þegar flýgur Icelandair til New York JFK, Washington, Boston, Chicago, Denver og Seattle.

Icelandair mun byrja á því að fljúga fjórum sinnum í viku til Minneapolis með Boeing 737 MAX 8 þotum en frá og með 16. júlí í sumar veður flogið daglega til Minneapolis og verður þá skipt yfir í Boeing 757 þotur.

Þrír áfangastaðir í Norður-Ameríku til viðbótar munu svo bætast við í leiðarkerfi Icelandair síðar í sumar en þeir eru allir í Kanada og eru það borgirnar Toronto, Vancouver og Montreal.

Áfangastaðir Icelandair í N-Ameríku verða því 10 talsins en þess má geta að sumarið 2019 flaug félagið einnig til Anchorage, Edmonton, Kansas, Philadelphia, Portland og til San Francisco.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga