flugfréttir
Korean Air ætlar að lágmarka geislun sem áhafnir verða fyrir
Magn geislunnar sem áhafnir og farþegar verða fyrir hverju sinni fer eftir á hvaða tíma sólarhringsins flogið er, fartíma auk staðsetningar og í hvaða flughæð flugvélin
Suður-kóreska flugfélagið Korean Air ætlar að hrynda úr vör verkefni til þess að lágmarka þá geislun sem flugmenn og áhafnir félagsins verða fyrir í háloftunum en þetta hefur verið ákveðið í kjölfar þess að nokkrir starfsmenn félagsins hafa greinst með hvítblæði sem rakið er til geislunnar.
Bæði flugáhafnir og farþegar verða fyrir geislun í háloftunum sem getur verið skaðleg og sérstaklega
fyrir þá sem verja meiri tíma í háloftunum líkt og áhafnir en um er að ræða geimgeislun
sem kemur bæði frá sólinni og einnig frá óravíddum alheimsins.
Stjórn flugfélagsins hefur haldið fundi með starfsmannafélögum í Suður-Kóreu og stendur
til að ýta úr vör sérstöku verkefni sem miðar af því að lágmarka geislun eins og hægt er og verður
byrjað á því að framkvæma rannsóknir á því hversu mikla geislun áhafnir verða fyrir hverju sinni.
Magn geislunnar sem áhafnir og farþegar verða fyrir hverju sinni fer eftir á hvaða tíma
sólarhringsins flogið er, fartíma auk staðsetningar og í hvaða flughæð flugvélin er en þá er einnig
vitað að mun meiri geislun verður þegar flogið er til að mynda nálægt norðurheimskautinu.
Vitað er að flugmenn og áhafnir verða fyrir mun meiri geislun en fólk á jörðu niðri sem getur
valdið því að mun meiri hætta sé á því að viðkomandi fái sjúkdóma á borð við krabbamein.
Korean Air hefur verið með skráningarkerfi þar sem flugfreyjur og flugþjónar geta
til að mynda fylgst með uppsafnaðri geislun sem talið er að þau verða fyrir og geta þau með
því breytt vöktum til að halda áhrifunum af geimgeislun innan æskilegra marka.
Með nýja verkefninu mun nýtt kerfi sjálfkrafa halda utan um þær upplýsingar og setja upp
vaktir meðal áhafna með þeim hætt að þær fari ekki yfir mörkin er kemur að geislun en með
því munu áhafnarmeðlimir, sem mælast með 6 millisievert (mSv) á ári, sjálfkrafa færast
yfir á vaktir fyrir styttri flugleiðir tímabundið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.