flugfréttir
Eurowings Discover nýtt dótturfélag Lufthansa Group
- Fljúga jómfrúarflugið í dag til Kenýa og Tanzaníu
Airbus A330-200 breiðþota Eurowings Discover
Lufthansa Group hefur kynnt til sögunnar nýtt dótturflugfélag sem nefnist Eurowings Discover en félagið mun fljúga í dag sitt fyrsta áætlunarflug frá Frankfurt til Mombasa til Kenýa og þaðan áfram til Zanzibar í Tansaníu.
Eurowings Discover mun hefja flugresktur með tvær Airbus A330-200 breiðþotur og eru frekari umsvif í kortunum
þar sem Lufthansa Group sér fram á tækifæri í skemmtiferðum til fjarlægra áfangastaða á meðan eftirspurn eftir langflugi
á fyrsta farrými er enn í dvala vegna heimsfaraldursins.
Jómfrúarflugið verður flogið frá Frankfurt klukkan 19:35 að staðartíma og er áætluð lending í Mombasa klukkan 5:10 í nótt. Þaðan tekur við stutt
flug yfir til Zanzibar og er áætluð brottför til baka til Frankfurt kl. 11:00 í fyrramálið og er gert ráð fyrir að lenda í Frankfurt
klukkan 18:40 annað kvöld.
Eurowings Discover gerir ráð fyrir að bæta við 10 þotum til viðbótar í flotann fyrir lok ársins og er áætlað að fyrir sumarið
2022 verði félagið komið með 21 þotu í rekstur og mun flotinn samanstanda þá af tíu Airbus A320 þotum og ellefu
Airbus A330 breiðþotum.
Fyrstu Airbus A330-200 þoturnar koma úr flota flugfélagisns Edelweiss sem er einnig dótturfélag Lufthansa Group sem
hefur hætt með allar þær fjórar A330-200 þotur sem félagið hafði en félagið mun nota áfram fjórar Airbus A340-300 breiðþotur
auk þess sem félagið hefur tíu Airbus A320 þotur í flotanum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.