flugfréttir

Nepal Airlines gæti orðið næsta flugfélag til að heyra sögunni til

24. júlí 2021

|

Frétt skrifuð kl. 15:16

Airbus A330 breiðþota frá Nepal Airlines

Mikil óvissa ríkir um framtíð flugfélagsins Nepal Airlines og gæti svo farið að félagið muni heyra sögunni til eftir 63 ára sögu en félagið var stofnað árið 1958.

Nepal Airlines hefur ekki fengið neina styrki vegna heimsfaraldursins og eru tveir möguleikar í stöðunni fyrir félagið sem er annaðhvort að flugreksturinn verði stöðvaður eða hefja leit að fjárfestum og einkavæða allan reksturinn.

Skuldir Nepal Airlines á seinasta fjármálaári námu 532 milljónum króna en farþegum í innanlandsflugi hefur fækkað um 73% og þá hefur 86 prósenta samdráttur orðið á farþegum í millilandaflugi.

Þrátt fyrir gríðarlegar skuldir eru margir stjórnmálamenn í Nepal sem vilja halda lífi í Nepal Airlines en félagið skuldar í dag um 4.9 milljarða króna. Ástæðan fyrir skuldunum eru vegna fjárfestinga við kaup á fjórum nýjum Airbus A320 þotum og tveimur Airbus A330-200 breiðþotum en þá hefur félagið einnig keypt sex kínverskar skrúfuþotur af gerðinni Harbin Y-12.

Fáir aðilar hafa viljað fjárfesta í Nepal Airlines en Lufthansa sýndi félaginu áhuga á sínum tíma en stjórnvöld í Nepal voru mjög sein að bregðast við og að lokum rann það tækifæri út í sandinn.

Þá er talið að það verði mjög erfitt að einkavæða Nepal Airlines eins og staðan er í dag þar sem mikil pappírsvinna væri framundan vegna þessa á sama tíma og félagið myndi samt sem áður þurfa að stöðva flugrekstur á næstunni tímabundið og þar að auki hafa margir stjórnarmeðlimir yfirgefið félagið og skilið það eftir nánast yfirgefið.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga