flugfréttir
Flugfarþegum fjölgar en ekki mikill bati yfir höfuð
Þótt að flugfarþegum hafi eitthvað fjölgað að undanförnu þá er batinn ekki nógu mikill á heimsvísu
Alþjóðasamtök flugfélaganna (IATA) segja að aðeins sé farið að örla fyrir aukinni eftirspurn í farþegaflugi á heimsvísu ef teknar eru saman tölur um eftirspurn bæði í millilandaflugi og í innanlandsflugi en fram kemur að bataferlið í flugiðnaðinum sé mjög hægfara.
Þrátt fyrir að eftirspurnin sé enn töluvert lægri en hún var árið 2019, áður en heimsfaraldurinn
skall á, þá mældist eftirspurnin eftir farþegaflugi í júní síðastliðnum 60% lægri en hún var
í júní árið 2019 sem er 3% aukning ef borið er saman við í maí í vor þegar eftirspurnin
var 63 prósentum lægri miðað við maí árið 2019.
Eftirspurn eftir millilandaflugi um allan heim mældist 81% minni í júní sl. sem er aukning
um 4 prósent en í maí mældist sú eftirspurn 85 prósent samanborið við maí árið 2019.
„Það sem við erum að sjá er skref í rétta átt og sérstaklega á lykilmörkuðum en eftirspurnin
eftir millilandaflugi er ekki nærri því farin að nálgast það sem vonast var til“, segir Willie Walsh,
framkvæmdarstjóri Alþjóðasamtaka flugfélaganna.
„Júní hefði átt að vera stærsti mánuðurinn en flugfélög voru aðeins að fljúga 20 prósent
af þeim farþegafjölda sem var árið 2019. Það kallast ekki bati heldur
áframhaldandi áhrif af krísunni sem stafar af aðgerðarleysi stjórnvalda“, segir Walsh.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.