flugfréttir

Tuttugu og fimm Boeing 737-800 fraktþotur á leið til Bluebird

- Ætla að þrefalda umsvif sín á næstu þremur árum

3. ágúst 2021

|

Frétt skrifuð kl. 17:56

Tölvugerð mynd af Boeing 737-800F fraktþotum í litum Bluebird Nordic

Íslenska fraktflutningaflugfélagið Bluebird Nordic stefnir á að stórauka umsvif sín og þrefalda afkastagetu félagsins á næstu þremur árum.

Bluebird Nordic stefnir meðal annars á að fjölga fraktflugvélunum í flotanum með því að taka í notkun 25 þotur af gerðinni Boeing 737-800 fyrir árið 2024.

Í dag hefur Bluebird átta fraktþotur en núverandi floti félagsins samanstendur af sjö Boeing 737-400F þotum og einni þotu af gerðinni Boeing 737-300F.

Fyrsta Boeing 737-800F þotan verður afhent strax í næsta mánuði og hefur félagið gengið frá leigusamningi við fyrirtækið Avia Solutions Group á Kýpur sem er systurfélag AviaAM Leasing.

Þotan er af gerðinni 737-700BFC og er verið að breyta þotunni í fraktþotu þessa stundina í Jinan í Kína hjá fyrirtækinu Taikoo Aircraft Engineering Company Limited (STAECO) en þotan var áður í rekstri sem farþegaþota hjá Turkish Airlines.

Önnur Boeing 737-800F þotan verður afhent til Bluebird Nordic í október í haust en verið er að breyta þeirri þotu einnig í fraktþotu hjá fyrirtækinu GAMECO í Guangzhou í Kína og kemur sú þota einnig úr flota Turkish Airlines.

Í tengslum við þessi auknu umsvif ætlar Bluebird Nordic að opna skrifstofur í Litháen og í Búlgaríu en höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í dag í Kópavogi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga