flugfréttir
Uganda Airlines býr sig undir breiðþotuflug með A330-800
Airbus A330-800 breiðþota frá Uganda Airlines
Flugfélagið Uganda Airlines býr sig undir að hefja áætlunarflug með breiðþotum í kjölfar þess að félagið hefur loksins fengið leyfi til þess að taka þær tvær Airbus A330-800 breiðþotur í notkun sem félagið fékk afhentar kringum seinustu áramót.
Uganda Airlines er eitt af þeim tveimur flugfélögum sem á von á minni gerðinni af Airbus A330neo
en hitt flugfélagið er Kuwait Airways sem hefur fengið tvær A330-800 þotur afhentar og á það félag
von á sex breiðþotum til viðbótar af þeirri gerð.
Uganda Airlines fékk í síðustu viku tegundarleyfi fyrir A330-800 þotunum og kemur fram í yfirlýsingu
að fyrsti áfangastaðurinn sem félagið mun fljúga til með nýju breiðþotunum er Dubai en því næst
verður þeim flogið til London Heathrow, Mumbai og til Guangzhou í Kína.
Flugfélagið fékk fyrri A330-800 þotuna afhenta í desember í fyrra og þá seinni í janúar á þessu ári
en vegna tafa við leyfisveitingu frá flugmálayfirvöldum í Úganda hefur áætlunarflug með þotunum
dregist á langinn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.