flugfréttir
Undirbúa notkun á tveimur flugbrautum á Gatwick
Frá Gatwick-flugvellinum í London
Gatwick-flugvöllurinn í London hefur tekið formlega ákvörðun um að hefja í náinni framtíð tveggja flugbrauta starfsemi með því að taka í notkun norðurbrautina á flugvellinum.
Gatwick-flugvöllur er í dag einn annasamasti flugvöllur heims í flokki þeirra sem hafa aðeins eina
flugbraut en í ágúst árið 2019 sendi flugvöllurinn inn umsókn um leyfi til viðkomandi nefndar undir heiti verkefnis
sem nefnist „Gatwick Airport Northern Runway“ sem er hluti að þeirri framtíðaráætlun sem Gatwick-flugvöllurinn kynnti það árið.
Aðalflugbrautin á Gatwick, 08R/26L brautin, er 3.316 metrar á lengd á meðan norðurbrautin, sem ekki er notuð í dag, er 2.565 metrar en aðeins eru um 200 metar sem skilja brautirnar frá hvor annarri sem stangast á við öryggisreglur eins og staðan er í dag er kemur að lendingum og flugtökum á sama tíma á báðum brautum.
Báðar flugbrautirnar yrðu notaðar fyrir flugtök á meðan aðalflugbrautin yrði notuð fyrir lendingar
en með því að nota báðar flugbrautirnar væri hægt að koma í veg fyrir seinkanir um Gatwick-flugvöll
og þá gæti flugvöllurinn tekið við 75 milljónum fleiri farþegum á ári.
Tólf vikna kynningarherferð vegna notkun á báðum flugbrautunum mun hefjast þann 3. september
næstkomandi og standa yfir til 1. desember en í tilkynningu segir að notkun á báðum flugbrautunum
mun hafa lítil áhrif á íbúa sem búa í nærliggjandi hverfum og uppfylla allar öryggiskröfur.
Fram kemur að norðurflugbrautin yrði aðallega notuð af minni flugvélum en báðar flugbrautirnar
myndu deila með sér sömu aðflugslínu og brottfararlínu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.