flugfréttir
Boeing 737 MAX færi leyfi til þess að fljúga á ný á Indlandi
Boeing 737 MAX þota í litum SpiceJet
Boeing 737 MAX þotan hefur fengið leyfi til þess að hefja flug að nýju á Indlandi en indversk flugmálayfirvöld hafa gefið út flughæfnisvottun fyrir MAX þotunum eftir tveggja og hálfs árs kyrrsetningu.
Flugmálayfirvöld á Indlandi hafa ákveðið að gera ekki sínar eigin kröfur varðandi þau atriði sem
737 MAX þoturnar þurfa að uppfylla til að geta hafið sig til flugs að nýju og fara flugmálayfirvöld þess í stað
eftir lista frá flugmálayfirvöldum í Evrópu (EASA).
Indverska flugfélagið SpiceJet er í dag eina indverska flugfélagið sem hefur Boeing 737 MAX þotur í flota
sínum en félagið verður þó ekki það eina til að fljúga MAX þotunum á Indlandi þar sem indversk
flugmálayfirvöld gáfu erlendum flugfélögum leyfi til þess að fljúga þotunum til Indlands í apríl.
Í dag eru 34 flugfélög í heiminum sem fljúga Boeing 737 MAX þotunum og eru 344 MAX þotur í notkun
um víða veröld en þá eru 209 þotur til viðbótar sem eru enn í geymslu eða ekki í reglulegri notkun.
Í dag á Boeing eftir að smíða 4.070 Boeing 737 MAX þotur sem verða afhentar til 74 flugfélaga
sem ýmist hafa ekki fengið neinar þotur afhentar eða hafa þegar fengið einhverjar í flotann og eiga
von á fleirum.
Þá kemur fram að af 195 löndum í heiminum þá hafa flugmálayfirvöld í 175 löndum gefið út leyfi
fyrir Boeing 737 MAX þotunni en flugmálayfirvöld í Kína eiga til að mynda enn eftir að gefa út
flughæfnisvottun fyrir Boeing 737 MAX þotunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.