flugfréttir

Bjartari tímar framundan hjá Norwegian

31. ágúst 2021

|

Frétt skrifuð kl. 16:50

Boeing 737-800 þotur Norwegian

Norwegian sér fram á betri tíma en flugfélagið norska segir að bókunum hafi fjölgað talsvert og þá dró úr taprekstri á fyrri árshelmingi samanborið við sama tímabil í fyrra.

Hagnaður Norwegian á fyrstu sex mánuðum ársins nam 23 milljörðum króna en á fyrri ársfjórðungnum árið 2020 varð 69 milljarða króna tap í rekstri félagsins.

Norwegian greip til sparnaðaraðgerða í vor og ákvað að skera verulega niður í flugflota félagsins auk þess sem ákveðið var að einblína eingöngu á áætlunarflug innan Evrópu með því að hætta öllu langflugi með breiðþotum.

„Bókunum fram í tímann heldur áfram að fjölga á sama tíma og verið er að slaka á ferðatakmörkunum þar sem verið er að bólusetja alla. Við eigum von á að þessi þróun eigi eftir að halda áfram svona út árið 2021 og áfram á næsta ári“, segir Geir Karlsen, framkvæmdarstjóri Norwegian.

Karlsen segir að vegna sterkrar fjárhagsstöðu Norwegian og endurgerðum og sveigjanlegri leigusamninga á flugvélum geti félagið aðlagað flugrekstrinum í beinum tengslum við eftirspurnina og eftir því hvernig hún breytist á hverjum tímapunkti fyrir sig.

Norwegian áætlar að nota í kringum fimmtíu Boeing 737 farþegaþotur áfram út árið og um 70 þotur hverju sinni árið 2022.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga