flugfréttir
Þrjár síðustu risaþoturnar afhentar í nóvember
Ein af síðustu risaþotunum sem framleidd var hjá Airbus í fyrra verður afhent í haust til Emirates
Emirates mun taka við þremur síðustu risaþotunum frá Airbus í nóvember en eftir það verður flugfélagið komið með allar þær Airbus A380 þotur sem félagið átti von á og lýkur þar með afhendingum á risaþotunum fyrir fullt og allt.
Til stóð að Emirates myndi fá síðustu risaþoturnar afhentar í júní árið 2020 en flugfélagið hefur nú beðið um að flýta fyrir
afhendingum.
Á meðan flest þau flugfélög, sem hafa Airbus A380 í flota sínum, hafa ákveðið að hætta með risaþoturnar vegna
áhrifa af heimsfaraldrinum þá hefur Emirates ákveðið að fljúga þeim áfram.
Tim Clark, forstjóri Emirates, segir að flugfélagið geri ráð fyrir að vera með Airbus A380 risaþoturnar að minnsta kosti
í tvo áratugi til viðbótar í flotanum.
Emirates hefur frá upphafi tekið við 122 risaþotum en félagið hefur tekið nokkrar risaþotur úr umferð.
Þegar Emirates verður búið að fá þrjár síðustu risaþoturnar afhentar verður flugfélagið komið með 118 risaþotur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.