flugfréttir
Óbólusettum flugmönnum hjá Aeroflot sagt upp störfum
Airbus A320 þota frá Aeroflot
Nokkrum flugmönnum hjá rússneska flugfélaginu Aeroflot hefur verið sagt upp störfum þar sem þeir hafa ekki viljað láta bólusetja sig gegn COVID-19.
Talsmaður Aeroflot segir að um sé að ræða sex flugmenn sem hafa verið látnir taka sér ólaunað frí tímabundið en
stéttarfélag rússneskra atvinnuflugmanna hefur lagt inn kvörtun á þeim forsendum að um ólöglegar uppsagnir sé að ræða
og sé verið að mismuna flugmönnunum þar sem flugfreyjur, flugþjónar og annað starfsfólk hafi ekki verið skyldað til þess
að láta bólusetja sig.
Igor Deldyuzhov, formaður Cockpit Personnel Association (SCPA), segir að um 84% starfsmanna
Aeroflot hafi í dag verið bólusettir gegn COVID-19 og á þeim forsendum ætti flugfélagið ekki
að refsa neinum af þeim 2.300 flugmönnum sem mögulega hafa ekki viljað láta bólusetja sig.
Þrátt fyrir að bólusetning í Rússlandi séu ókeypis þá er hlutfall þeirra Rússa sem eru
fullbólusettir tiltölulega lágt en aðeins er búið að bólsetja
39 milljónir af þeim 146 milljónum íbúum sem búa í Rússlandi.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.