flugfréttir
Heathrow kallar enn eftir aðgerðum til að auka flugumferð
Frá Heathrow-flugvellinum í London
Stjórn Heathrow-flugvallarins í London kallar enn og aftur eftir nýjum og skipulagðari takmörkunum á ferðalögum fyrir flugfarþega en enn hefur farþegum ekki náð að fjölga að neinu ráði um Heathrow-flugvöll á sama tíma og farþegum hefur fjölgað gríðarlega um aðra stóra flugvelli í Evrópu.
Nýjar tölur um farþegafjölda sýna fram á enn fara aðeins um 30% um Heathrow af þeim fjölda
sem fór um flugvöllinn fyrir heimsfaraldurinn og er helsta ástæðan fyrir því sögð vera
síbreytilegar takmarkanir í Bretlandi vegna COVID-19 og ruglingsleg fyrirmæli um kröfur um
skimanir fyrir farþega.
Heathrow-flugvöllur var árið 2019 annasamasti flugvöllur Evrópu en er núna í 10. sæti
yfir stærstu flugvellina er kemur að farþegafjölda þar sem flugvellir á borð við
Schiphol í Amsterdam, París og Frankfurt hafa tekið fram úr vegna þess hversu farþegum hefur
fjölgað ört sl. mánuði og vikur.
Stjórn Heathrow-flugvallarins hefur ítrekað kallað eftir aðgerðum frá stjórnvöldum til þess
að einfalda takmarkanir fyrir farþega svo hægt sé að afnema flöskuhálsinn og auka
eftirspurn eftir flugi á ný og einnig flýta fyrir skimunarferlinu á flugvellinum.
„Ríkisstjórnin hefur valdið til þess að standa vörð um samkeppni á farþegaflugi sem myndi
efla enn frekar efnahag Bretlands. Ef ráðherrar nýta ekki það tækifæri þá verður það til þess
að Bretland mun verða enn meira eftir á er kemur að viðskiptum og efnhagslegum tengslum“, segir
John Holland-Kaye, framkvæmdarstjóri Heathrow-flugvallarins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.