flugfréttir
Jet Airways stefnir á endurkomu eftir áramót
Flugfloti Jet Airways í flugskýli á flugvellinum í Hyderabad á Indlandi
Indverska flugfélagið Jet Airways hefur gert enn önnur áformin um að hefja flugrekstur á ný og er þetta þriðja tilraunin sem gerð verður til þess að koma starfsemi félagsins aftur í gang.
Jet Airways hætti starfsemi sinni í apríl árið 2019 í kjölfar erfiðra fjárhagsörðuleika
sem varð til þess að félagið lýsti yfir gjaldþroti en Jet Airways var eina flugfélagið á Indlandi
sem bauð upp á fulla þjónustu fyrir utan Air India en öll önnur indversk flugfélög eru
lágfargjaldafélög.
Eigendur Jet Airways hafa lýst því yfir að til stendur að félagið hefji aftur áætlunarflug
á fyrsta ársfjórðungi ársins 2022 en vonir voru bundnar við að félagið myndi hefja sig til
flugs að nýju fyrir lok þessa árs.
Gert er ráð fyrir að flugfélagið verði komið með 50 þotur í rekstur innan þriggja ára og
100 þotur innan fimm ára en flugflotinn taldi 119 þotur fyrir gjaldþrot þess fyrir tveimur
árum síðan.
Jet Airways fékk leyfi í júní til þess að hefja áætlunarflug aftur og í ágúst byrjaði félagið
að auglýsa aftur eftir flugmönnum og er nú reynt að koma starfseminni í gang eftir áramót.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.