flugfréttir
United sektað um yfir 240 milljónir vegna seinkana
Lengsta biðin var 5 klukkustundir sem átti sér stað í innanlandsflugi hjá United Airlines í apríl árið 2016
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) hafa sektað United Airlines um 1.9 milljón Bandaríkjadali eða sem samsvarar 243 milljónum króna vegna seinkana þar sem farþegar þurftu að bíða um borð í flugvélum á jörðu niðri í nokkar klukkustundir.
Þetta er ein hæsta sekt sem FAA hefur gefið út vegna seinkana og varðar málið 25 mismunandi flugferðir
á tímabilinu frá desember árið 2015 til febrúar á þessu ári og voru um 3.200 farþegar í þeim flugvélum
sem þurftu að bíða í einhverjar klukkustundir áður en þeir fengu að fara frá borði.
United Airlines segir að í flestum tilfellum hafi verið um að ræða aðstæður sem tengdust slæmu veðri
en samkvæmt lögum verður að hleypa farþegum aftur inn í flugstöðina ef flugvél í innanlandsflugi
er í meira en þrjár klukkustundir á jörðu niðri í innanlandsflugi í Bandaríkjunum og eftir 4 tíma sé um
að ræða millilandaflug.
Lengsta biðin var 5 klukkustundir sem átti sér stað í innanlandsflugi hjá United Airlines í apríl árið 2016
en þá var um að ræða þotu sem þurfti að lenda í New Orleans á leið sinni til Houston í Texas.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.