flugfréttir
Flugmenn hjá BA fá boð um að fljúga þotum fyrir Qatar Airways
- Qatar Airways nær ekki að manna allar áhafnir eftir kórónaveirufaraldurinn
Boeing 777 þota frá Qatar Airways á Heathrow-flugvellinum í London
Hópur flugmanna hjá British Airways hafa fengið boð um að þiggja starf hjá Qatar Airways sem er í vandræðum þessa daganna við að manna áhafnir um borð í Boeing 777 þotum félagsins fyrir vetrartímann.
Um er að ræða þá flugmenn hjá British Airways sem fljúga Boeing 777 þotunum en verið er að óska eftir að minnsta kosti 40 flugmönnum og er hlutfall frekar jafnt milli flugmanna og flugstjóra
sem beðið er um.
Um tímabundnar tilfæringar er að ræða og myndu þeir flugmenn, sem taka boðinu, aðeins fljúga Boeing 777
þotunum hjá Qatar Airways í vetur eða fram á næsta vor.
Fram kemur að þjálfun fer fram í Doha í október og í nóvember og myndu flugmenn byrja að fljúga
þotunum hjá Qatar Airways mjög fljótlega eftir en British Airways
mun greiða flugmönnunum launin hinsvegar en ekki Qatar Airways.
Þess má geta að Qatar Airways á 25 prósenta hlut IAG (International Airlines Group) sem er móðurfélag
British Airways en þetta er ekki í fyrsta sinn sem að flugfélögin tvö hlaupa undir bagga fyrir hvort annað
þegar þau lenda í vandræðum með áhafnir eða flotamál.
Ástæða þess að Qatar Airways þarf á flugmönnum British Airways að halda er tilkomin þar sem félagið
hefur verið að færa út kvíarnar á ný á miklum hraða í kjölfar heimsfaraldursins til þess að anna
eftirspurninni á sama tíma og félagið hefur ekki nægilega marga flugmenn til taks á meðan British
Airways hefur fleiri flugmenn en félagið mun hafa þörf fyrir í vetur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.