flugfréttir
Þörf fyrir yfir 9.000 flugvélar í Kína á næstu 20 árum
COMAC telur að þörf sé fyrir 9.084 flugvélar í Kína á næstu 20 árum
Kínverski flugvélaframleiðandinn COMAC telur að þörf sá á yfir 9.000 nýjar flugvélar í Kína á næstu 20 árum eða 9.084 flugvélum til ársins 2040.
COMAC segir að flugvélarnar skiptist niður í 6.295 minni farþegaflugvélar sem koma með
einum gangi, 1.836 breiðþotur og 953 skrúfuþotur. Framleiðandinn telur að eftirspurnin verði
tilkomin vegna aukinnar flugumferðar og fjölgun flugfarþega í landinu.
Talið er að til ársins 2040 muni Kína taka við 9.957 nýjum flugvélum ef sama þróun heldur
áfram auk aukinnar eftirspurnar eftir flugvélum miðað við fjölgun farþega og telur sá fjöldi
flugvéla um 22% af öllum þeim flugvélum sem á eftir að afhenda í heiminum sem gerir
Kína að einum stærsta markaði heims í flugiðnaðinum.
Séð er fram á að innanlandsflug í Kína og í Bandaríkjunum eigi eftir að ná sér fyrst á strik
eftir heimsfaraldurinn en því næst fylgir Evrópu í kjölfarið en talið er að aðrir markaðir
í heiminum eigi eftir að ná sér að fullu árið 2023.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.