flugfréttir
GE Aviation afhendir síðasta CF-6-80E1 hreyfilinn
Síðasti CF-6-80E1 hreyfillinn var afhentur í síðustu viku til China Airlines fyrir eina af Airbus A330 breiðþotum félagsins
Hreyflaframleiðandinn GE Aviation hefur afhent síðasta CF-6-80E1 hreyfilinn en afhendingin markar endalok framleiðslu hreyfilsins.
CF-6-80E1 er ein síðasta tegundin sem framleidd hefur verið í CF-6 fjölskyldunni en hægt og bítandi
hafa GEnx hreyflarnir verið að taka við á undanförnum árum og leysa CF-6 af hólmi.
Síðasti CF-6-80E1 hreyfillinn var afhentur í síðustu viku til China Airlines fyrir eina af Airbus A330
breiðþotum félagsins en China Airlines er einn stærsti viðskiptavinur GE Aviation í Asíu er kemur
að CF-6 hreyflinum.
CF-6-80E1 er öflugasti hreyfillinn í CF-6 fjölskyldunni og er hann mjög algengur meðal þeirra
Airbus A330 breiðþotna sem hefur verið breytt úr farþegavél yfir í fraktflugvél.
Fyrr á þessu ári afhenti GE Aviation síðasta CF-6-6 hreyfilinn og þá var síðasti CF-6-50 hreyfillinn afhentur árið 2015.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.