flugfréttir
Airbus afhenti 40 flugvélar í september
Airbus afhenti 40 flugvélar í september
Airbus afhenti 40 flugvélar í septembermánuði til 25 viðskiptavina sem er sami flugvélafjöldi og framleiðandinn afhenti í ágústmánuði.
Meðal þeirra flugvéla sem afhentar voru í september voru fyrstu Airbus A220 (CSeries) þoturnar
til Air France en að öðru leyti voru afhentar þotur af öllum öðrum flugvélategundum
sem framleiddar eru fyrir utan risaþotuna Airbus A380.
Það sem af er þessu ári hefur Airbus afhent 424 flugvélar til 74 viðskiptavina og þarf Airbus
því að ná að afhenda 176 flugvélar til viðbótar til þess að standast afhendingaráætlunina fyrir árið 2021
sem telur 600 flugvélar.
Airbus fékk aðeins eina pöntun í september sem var pöntun í eina Airbus ACJ319neo einkaþotu
til óþekkts viðskiptavinar en von er á fleiri pöntunum í einkaþotur á næstu dögum þar sem NBAA einkaþotusýningin
stendur nú yfir í Las Vegas.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.