flugfréttir
Lufthansa endurgreiðir þýska ríkinu yfir 200 milljarða
Airbus A380 risaþota í flota Lufthansa
Lufthansa lítur til framtíðar með björtum augum eftir heimsfaraldurinn og hefur flugfélagið þýska endurgreitt þýsku ríkisstjórninni um 220 milljarða króna sem félagið fékk í fjárhagsaðstoð vegna COVID-19.
Lufthansa segir að félagið hafi náð að auka lausafé sitt um 325 milljarða króna og stendur til
að endurgreiða þýska ríkinu enn hærri upphæð vegna styrks sem flugfélagið fékk frá björgunarsjóði
vegna heimsfaraldursins.
Flugfélagið segir að þessi endurgreiðsla hafi átt sér stað mun fyrr en gert var ráð fyrir og
segir Carsten Spohr, framkvæmdarstjóri félagsins, að Lufthansa muni standa við loforð sín um endurgreiðslu
á fjárhagsaðstoðinni.
Spohr tók einnig fram að Lufthansa hefði mikla trú á að bjartari tímar séu framundan. „Fleiri lönd eru að opna
landamæri sín og eftirspurn eftir flugi eykst á hverjum degi og á það einnig við meðal farþega í viðskiptaerindum“, segir
Spohr en hann tók einnig fram að umhverfið í fluginu sé ennþá mjög krefjandi viðureignar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.