flugfréttir
FAA vill fækka slysum í Alaska og efla flugöryggi
- Meira en tvisvar sinnum fleiri flugslys í Alaska miðað við önnur fylki
Fjölmörg samfélög í Alaska reiða sig alfarið á flugsamgöngur til þess að komast á milli staða
Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla að kynna á næstunni tillögur til þess að draga úr flugslysum og flugatvikum í Alaska en tíðni slysa og óhappa í fluginu er mun meiri þar en í öðrum fylkjum Bandaríkjanna.
Fram kemur að frá árinu 2008 til 2017 hafi verið 2.35 sinnum fleiri flugslys í Alaska samanborið við önnur fylki en
í flestum tilvikum hafa átt í hlut litlar flugvélar í farþegaflugi sem fljúga til afskekktra flugvalla í Alaska sem eru nauðsynlegir
fyrir þá sem búa á afskekktum svæðum.
Meðal þess sem FAA er að skoða er að innleiða nýja tækni er kemur að því að skoða rauntímaupplýsingar um veðurfar
á afskekktum flugvöllum auk útgáfu á nákvæmari flugkortum.
„Ekkert fylki í Bandaríkjunum reiðir sig eins mikið á flugsamgöngur líkt og Alaska og við ætlum okkur að gera allt sem í
okkar valdi stendur til þess að gera flugsamgöngur öruggari á þessum svæðum“, segir Steve Dickson, yfirmaður bandarískra
flugmálayfirvalda.
Í september tilkynnti FAA að til stæði að verja 5.4 milljörðum króna til nokkurra flugvalla í Alaska en þar á meðal
eru sjö flugvellir sem verður sérstaklega fjárfest í og einnig á svæðum þar sem engar vegasamgöngur eru til staðar
og héröð þar sem innfæddir treysta á flug til þess að komast á milli staða.
Meðal alvarlegri flugslysa sem hafa átt sér stað að undanförnu í Alaska má nefna atvik er tvær flugvélar rákust saman
á flugi þann 13. maí árið 2019 en þar áttu í hlut DHC-2 Beaver sjóflugvél frá Mountain Air Service og DHC-3 Turbine Otter
frá Taquan Air en í því slysi voru sex manns sem týndu lífi.
Þá rann farþegaflugvél af gerðinni Saab 2000 út af flugbraut í lentingu á Aleutian Island flugvellinum þann 17. október sama
ár með þeim afleiðingum að einn farþegi lét lífið.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.