flugfréttir
Isavia setur upp og gefur öfluga loftgæðamæla
Loftgæðamælir við brottfararhlið á Keflavíkurflugvelli
Isavia hefur í samvinnu við Verkfræðistofuna Vista sett upp þrjá nýja loftgæðamæla á Keflavíkurflugvelli en jafnframt voru gefnir og settir upp mælar í Sandgerði og í Garði til að fylgjast vel með loftgæðum íbúa.
Staðsetning mælanna í Garði og Sandgerði var valin í samstarfi við Suðurnesjabæ og Umhverfisstofnun til að þétta mælanet stofnunarinnar. Gjöf Isavia er hluti af sjálfbærnistefnu fyrirtækisins.
Mælarnir mæla ýmis efni í andrúmsloftinu sem geta borist frá eldstöðvum, meðal annars brennisteinsvetni, brennisteinsdíoxíð og köfnunarefnisdíoxíð. Auk þess greina mælarnir hitastig, rakastig og loftþrýsting. Um er að ræða öfluga mæla frá breska fyrirtækinu AQMesh sem hefur sérhæft sig í loftgæðamælum og eru mælar frá AQmesh í notkun út um allan heim og hafa þeir t.d. verið notaðir til að mæla brennisteinsdíoxíð frá eldfjallinu Masya í Níkaragva.
„Það er okkur mjög mikilvægt að geta haft góða yfirsýn á loftgæðum á Keflavíkurflugvelli og þessir nýju mælar auðvelda okkur þá vinnu. Góð loftvist er mikilvæg okkar starfsfólki, gestum og nærumhverfi flugvallarins. Isavia hefur sett sér öfluga stefnu á sviði sjálfbærni og er þessi fjárfesting hluti af þeirri stefnu okkar. Við höfum átt gott samstarf með Suðurnesjabæ og Umhverfisstofnun við val á staðsetningu mæla í sveitarfélaginu. Fjárfestingin í nýju mælunum mun því einnig skila sér til aukinni nákvæmni í mælingum á Reykjanesi og inn á mælanet Umhverfisstofnunar,” segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia.
„Við erum mjög ánægð með samstarfið með Isavia við að setja upp loftgæðamæla sem eiga að tryggja góða loftvist handa starfsmönnum Isavia, ferðamönnum og íbúum á Reykjanesi. Tækninni hefur fleygt fram og er núna mun auðveldar að vera með mælingar sem eru sýndar í rauntíma. Við óskum Isavia til hamingju með mælana.“ Heiðar Karlsson, framkvæmdastjóri Vista.
Að loknum prófunum verða mælingarnar gerðar aðgengilegar á vef Umhverfisstofnunar www.loftgaedi.is og hefur þannig almenningur fullan aðgang að mælingunum. Ástand loftgæða á hverri mælistöð er litamerkt þannig að almenningur á auðvelt með að átta sig á stöðunni. Styrkur mengunarefna á hverri stöð ræður litnum á viðkomandi stöð á Íslandskortinu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.