flugfréttir

Umfangsmikil flugslysaæfing fór fram í Keflavíkurflugvelli

- Um 500 manns tóku þátt í flugslysaæfingunni

25. október 2021

|

Frétt skrifuð kl. 13:04

Frá flugslysaæfingunni á Keflavíkurflugvelli sl. laugardag

Á fimmta hundrað manns tóku þátt í umfangsmikilli flugslysaæfingu sem haldin var á Keflavíkurflugvelli sl. laugardag en æfingar á flugvellinum eru stærstu hópslysaæfingar sem haldnar eru á Íslandi.

Æfingar af þessu tagi eru afar mikilvægar fyrir heildarviðbragðskerfi Íslands hvort sem um er að ræða flugslys eða önnur hópslys.

Stór flugslysaæfing er haldin á 3-4 ára fresti á hverjum flugvelli á Íslandi þar sem boðið er upp á áætlunarflug. Æfingar eru tvær til fjórar á ári hverju. Isavia hefur staðið fyrir um sextíu flugslysaæfingum frá árinu 1996. Undirbúningur fyrir æfingar sem þessa hefst um þremur mánuðum áður en til hennar kemur og er hún unnin í nánu samstarfi við viðbragðsaðila á hverjum stað.

Þar á meðal eru starfsmenn flugvallarins, lögregla, slökkvilið, sjúkraflutningsaðilar, starfsfólk sjúkrahúsa, almannavarnir, björgunarsveitir, Rauði krossinn, rannsakendur, flugrekendur og flugafgreiðsluaðilar.

Þátttakendur á æfingunni voru á fimmta hundrað í dag, þar af um 150 sjálfboðaliðar sem léku slasaða og aðstandendur. Sett var á svið flugslys þar sem þota brotlenti á flugbraut og endar vestan við hana. Kveikt var í bílflökum sem ætlað var að líkja eftir flugvélabúk til að gera vettvanginn sem raunverulegastan. Sjálfboðaliðar í hlutverki slasaðra voru farðaðir og allt gert til að líkja sem mest eftir raunverulegu slysi.

Stór flugslysaæfing er haldin á 3-4 ára fresti á hverjum flugvelli á Íslandi þar sem boðið er upp á áætlunarflug

„Æfingin gekk afar vel og nú hefst vinna við að rýna viðbrögðin,“ segir Elva Tryggvadóttir, verkefnastjóri neyðarviðbúnaðar hjá Isavia og æfingastjóri. „Það verður farið ítarlega yfir þau atriði sem gengu vel á þessari æfingu og einnig það sem betur mætti fara.“

„Æfingarnar eru gríðarlega mikilvægar fyrir okkur hjá Isavia en einnig fyrir viðbragðskerfið í nærsamfélagi við flugvellina,“ segir Friðfinnur Freyr Guðmundsson, verkefnastjóri neyðarviðbúnaðar hjá Isavia og fulltrúi í æfingastjórn. „Það var einstaklega gaman að sjá hvað allt gekk vel hér í dag og hversu mjög allir viðbragðsaðilar eru viðbúnir ef vá ber að höndum.“

„Við viljum þakka öllum þeim fjölmörgu aðilum sem komu að æfingunni fyrir afskaplega gott samstarf,“ segir Elva.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga