flugfréttir

Blue Panorama á Ítalíu hættir starfsemi

- Fjórða ítalska flugfélagið sem hættir starfsemi frá því COVID-19 hófst

27. október 2021

|

Frétt skrifuð kl. 16:14

Boeing 737 þota frá Blue Panorama á Bergamo-flugvellinum í Mílanó

Ítalska flugfélagið Blue Panorama hefur hætt starfsemi sinni og aflýst öllu flugi. Er þetta því fjórða flugfélagið á Ítalíu sem hættir starfsemi sinni frá því að heimsfaraldurinn hófst.

Blue Panorama var stofnað árið 1998 og hélt félagið úti leiguflugi og áætlunarflugi og flaug félagið til 20 áfangastaða með tíu þotum af gerðinni Boeing 737 og Airbus A330.

Talsmaður eins af verkalýðsfélagsfélögunum á Ítalíu segir að flugvélar Blue Panorama væru núna kyrrsettar á nokkrum flugvöllum víðsvegar um Ítalíu og er vonast til þess að staðan sé aðeins tímabundin.

Verkalýðsfélög á Ítalíu segja að ástandið í flugiðnaðinum í landinu sé almenn frekar slæmt og þá sérstaklega fyrir ítölsku flugfélögin og önnur fyrirtæki í fluginu og hefur staðan keðjuverkandi áhrif á alla aðila innan flugsins og þúsundir starfa séu í hættu.

Önnur ítölsk flugfélög sem hafa hætt starfsemi sinni eða orðið gjaldþrota frá því faraldurinn hófst eru Alitalia, sem var lagt niður fyrr í þessum mánuði, Air Italy varð gjaldþrota í febrúar 2020 eftir tveggja ára starfsemi og Ernest varð gjaldþrota í janúar árið 2020 eftir aðeins 4 ára starfsemi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga