flugfréttir

Kynna 100 sæta rafmagnsflugvél sem kemur á markað árið 2026

5. nóvember 2021

|

Frétt skrifuð kl. 13:46

Wright Spirit á að koma á markaðinn árið 2026

Fyrirtækið Wright Electric hefur kynnt til sögunnar farþegaþotu sem verður eingöngu knúin áfram fyrir rafmagni sem á að koma á markað árið 2026 en flugvélin mun taka 100 farþega í sæti.

Flugvélin, sem nefnist Wright Spirit, var kynnt til sögunnar í gær á COP26 loftslagsráðstefnunni í Glasgow í Skotlandi og er um að ræða BAe 146 flugvél sem verður útbúin með fjórum rafmagnsflugvélum.

Fram kemur að flugvélin mun henta vel á styttri og fjölförnum flugleiðum á borð við frá London til París, New York - Washington, Frankfurt - París og á milli Seoul og Juju í Suður-Kóreu.

Tilraunir og prófanir með fyrsta rafmagnsþotuhreyfilinn munu hefjast árið 2023 og árið 2024 er gert ráð fyrir að fyrstu flugprófanirnar munu hefjast.

„Flugiðnaðurinn stefnir á kolefnislausan útblástur fyrir árið 2050 en Wright stefnir á 100% kolefnislaust flug árið 2026“, segir Jeff Engler, framkvæmdarstjóri Wright Electric, sem bendir á að töluvert verði hægt að draga úr kolefnalosun með því að fljúga með rafmagnsflugvélum á milli stórborga þar sem eftirspurn eftir flugi er mikil.

Wright Electric hefur unnið að verkefni er snýr að rafmagnsflugvél í samstarfi við flugfélögin Viva Aerobus og easyJet

Þá vinnur fyrirtækið einnig að þróun á stærri rafmagnsflugvél sem er ætlað að taka 186 farþega með flugdrægi upp á 800 mílur (1.480 kílómetra) sem á að koma á markaðinn árið 2030.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga