flugfréttir

Starfsemi Keflavíkurflugvallar kolefnislaus árið 2030

10. nóvember 2021

|

Frétt skrifuð kl. 18:34

Farþegaþotur Icelandair og Play á Keflavíkurflugvelli

Starfsemi Keflavíkurflugvallar verður kolefnislaus árið 2030 samkvæmt nýrri sjálfbærnistefnu Isavia.

Það er áratug á undan áætlun íslenskra stjórnvalda um kolefnishlutleysi og tveimur áratugum á undan NetZero-skuldbindingu Evrópudeildar Alþjóðsamtaka flugvalla (ACI Europe), sem Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, undirritaði ásamt forstjórum 194 annarra flugvalla í Evrópu í júní 2019.

„Við höfum lagt mikla áherslu á umhverfismál og samfélagslega ábyrgð í okkar rekstri,“ segir Sveinbjörn. „Frá árinu 2015 höfum við markvisst unnið að því að minnka kolefnisútblástur okkar og erum m.a. að vinna að 3. stigi af sex í innleiðingu á kolefnisvottun ACA (Airport Carbon Accreditation). Við höfum kortlagt kolefnisspor okkar, gripið til aðgerða til að minnka það og sett okkur markmið um samdrátt. Eftir ítarlega yfirferð á okkar losun má fullyrða  núna að við getum orðið kolefnislaus í okkar rekstri í síðasta lagi árið 2030.“

Hvað hefur þegar verið gert til að draga úr kolefnislosun?

Eldsneytisnotkun er veigamesti umhverfisþáttur í starfsemi Isavia.  Langstærsti hluti eldsneytisnotkunar er vegna þjónustu og viðhalds á brautum flugvallarins. Vel er fylgst með notkun eldsneytis í starfseminni og unnið að því að draga úr þar sem hægt er. Isavia hefur prófað sig áfram með notkun repjuolíu á tæki og hafa þær prófanir gefið góða raun.

Hvað þarf að gera til að ná Net Zero takmarkinu 2030?

„Mestu áskoranir Isavia til þess að draga úr kolefnissporinu er að finna lausnir á því hvernig megi draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá sérhæfðum tækjum flugvallarins,“ segir Hrönn Ingólfsdóttir, forstöðumaður stefnumótunar og sjálfbærni hjá Isavia. „80% af kolefnisspori í starfsemi Isavia er vegna notkunar jarðeldsneytis á ökutæki í starfsemi Keflavíkurflugvallar.“ Aðgerðir snúa fyrst og fremst að endurnýjun bíla- og tækjaflota félagsins. Þar er um að ræða  um 140 tæki á Keflavíkurflugvelli og skynsamlegri nýtingu auðlinda þar sem sóun er haldið í lágmarki. 

Nú þegar eru til lausnir fyrir minni ökutæki sem hægt er að skipta út fyrir rafmagnstæki í dag með eðlilegri endurnýjun.  Það tekur lengri tíma að skipta út stærri tækjum en áætlanir gera ráð fyrir að það náist innan tilsetts tíma. Samhliða útskiptingu tækja er þörf fyrir innviðauppbyggingu til þess að þjóna flotanum með nýjum, umhverfisvænni orkugjöfum. „Þessu til viðbótar erum við að láta greina fýsileika þess að nota vetni á varaaflsstöðvar til að minnka notkun jarðefnaeldsneytis og losna loks alfarið við það,“ segir Hrönn.

Samvinna við rekstraraðila á vellinum til framtíðar

"Við höfum sjálfbærni að leiðarljósi í öllu sem við gerum og vinnum að framþróun og stöðugum umbótum í málaflokknum.  Við sýnum frumkvæði í  því að auka sjálfbærni í öllu flugvallarsamfélaginu og vinnum markvisst með viðskiptafélögum á Keflavíkurflugvelli að lausnum og sameiginlegum árangri,“ segir Hrönn Ingólfsdóttir. „Það er miklar breytingar til framtíðar að verða á því hvernig flugvellir starfa og það er að mörgu að huga.  Nauðsynlegt er að fylgjast vel með nýjungum og vinna saman að lausnum.“ Nánari upplýsingar um aðgerðir Isavia um umhverfismálum og samfélagsábyrgð má finna í Árs- og samfélagsskýrslum félagsins á vef Isavia.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga