flugfréttir

Panta 255 þotur frá Airbus

- 102 þotur fara til Wizz Air

15. nóvember 2021

|

Frétt skrifuð kl. 09:29

Frá undirritun pöntunarinnar í gær á Dubai Air Show flugsýningunni

Bandaríska fyrirtækið Indigo Partners hefur lagt inn pöntun til Airbus í 255 farþegaþotur úr Airbus A321neo fjölskyldunni.

Tilkynnt var um pöntunina í gær á Dubai Air Show flugsýningunni en þess má geta að Indigo Partners lagði inn pöntun í 430 þotur frá Airbus á flugsýningunni í Dubai árið 2017.

Þoturnar munu fara til flugfélaganna Wizz Air, Frontier Airlines, JetSMART og Volaris. Airbus hefur ekki viljað gefa upp verðmæti pöntunarinnar þar sem flugvélaframleiðandinn hætti að birta verðlista á flugvélum árið 2019 en talið er að pöntunin sé metin á 32 milljarða Bandaríkjadali sem samsvarar 4.218 milljörðum króna.

„Það er okkar mat að flugiðnaðurinn eigi eftir að ganga í gegnum bataferli á næstunni og að eftirspurnin eigi eftir að koma til baka“, segir Bill Franke, framkvæmdarstjóri Indigo Partners.

Af þotunum 255 munu 102 fara til ungverska lágfargjaldafélagsins Wizz Air, 91 þota fer til Frontier Airlines, 39 þotur fara til flugfélagsins Volaris í Mexíkó og 23 til JetSMART í Chile.

Af þeim 102 þotum sem fara til Wizz Air verða 75 af gerðinni Airbus A321neo og 27 af gerðinni Airbus A321XLR en þoturnar verða afhentar frá árinu 2025 til ársins 2027.

Wizz Air hefur í dag 144 þotur í flota sínum en félagið átti þegar von á 434 þotum en eftir daginn í gær á félagið von á 536 þotum á næstu árum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga