flugfréttir

Ónýt og óflughæf Sukhoi-þota til sölu á uppboði

- Afskrifuð eftir óhapp í lendingu árið 2018

21. nóvember 2021

|

Frétt skrifuð kl. 17:35

Þotan var afskrifuð eftir að hún fór út af braut í lendingu á flugvellinum í borginni Yakutsk í Rússlandi

Farþegaþota af gerðinni Sukhoi Superjet 100 verður seld á uppboði í Rússlandi á næstunni en þotan er skemmd eftir óhapp sem átti sér stað í lendingu árið 2018 á flugvellinum í rússnesku borginni Yakutsk og var flugvélin eftir það afskrifuð sem ónýt í kjölfarið.

Þotan var afhent ný árið 2012 til rússneska flugfélagsins Yakutia Airlines og flaug þotan í flota félagsins í sex ár þar til í október árið 2018 er hún rann út af braut í lendingu og rakst utan í hindranir og aðflugsmöstur með þeim afleiðingum að alvarlegar skemmdir urðu á lendingarbúnaði vélarinnar.

Við rannsókn á atvikinu kom í ljós að flugumferðarstjórar gáfu flugmönnum upp rangar upplýsingar varðandi bremsuskilyrði á brautinni. Ísing var á flugbrautinni og hafði flugvélin ekki nægilega getu til þess að bremsa.

Flugvélin er ekki flughæf en er að öðru leiti heil og hefur því verið ákveðið að selja hana á uppboði hjá rússneska uppboðsfyrirtækinu RAD með lágmarksboð upp á eina milljón bandríkjadali eða sem samsvarar 131 milljón króna.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga