flugfréttir

Enn og aftur reynt að stofna nýtt flugfélag í Nígeríu

29. nóvember 2021

|

Frétt skrifuð kl. 10:53

Boeing 737 þota frá Air Nigeria sem hætti flugrekstri árið 2012

Enn og aftur stendur til að koma á fót nýju þjóðarflugfélagi í Nígeríu en Hadi Sirika, flugmálaráðherra landsins, segir að verið sé að undirbúa stofnun flugfélagsins Nigeria Air.

Fram kemur að ef allt gengur samkvæmt áætlun mun Nigeria Air hefja flugrekstur í apríl eftir áramót og er vonast til að fjárfestar munu koma til með að eiga 49 prósent í félaginu á meðan einkaaðilar haldi 46 prósentum og nígeríska ríkisstjórnin 5 prósentum.

Leit að samvinnuaðila til þess að koma að fjárfestingu er við það að hefjast og kemur fram að það gæti annað hvort verið erlent flugfélag eða erlent fyrirtæki sem kæmi þá með tæpa 40 milljarða inn í félagið.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem reynt er að stofna nýtt þjóðarflugfélag í Nígeríu en seinasta tilraun sem gerð var árið 2018 fór út um þúfur en Nígería hefur verið án þjóðarflugfélags í 18 ár eða frá því Nigeria Airways varð gjaldþrota árið 2003 eftir 45 ára flugrekstur.

Virgin Atlantic stofnaði útibú af flugfélagi sínu í Nígeríu árið 2005 í samvinnu við ríkisstjórn landsins en Virgin seldi hlut sinn í því árið 2008 og var því flugfélagi breytt í Air Nigeria en það félag hætti loks rekstri árið 2012.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga